Töfrasýning, tónleikar og smiðjur á Náttúrubarnahátíð á Ströndum

Það verður mikið fjör á Ströndum helgina 14.-16. júlí. Þá verður haldin árleg Náttúrubarnahátíð á Sauðfjársetrinu, sem er skammt sunnan við Hólmavík. Að venju verður þar fjölbreytt og skemmtileg dagskrá, en um er að ræða fjölskylduhátíð þar sem börn og fullorðnir fá tækifæri til að finna eða rækta sitt innra náttúrubarn. Á dagskránni eru bæði útivist, fróðleikur, smiðjur og listviðburðir. Ókeypis aðgangur er að hátíðinni og öllum viðburðum.