
Gýgar farnir að hlaðast upp – myndir
Virkni í jarðeldunum við Litla-Hrút á Reykjanesi er svipuð og hún var í gær, en vöktunar- og viðbragðsaðilar taka fram að gosið getur breyst með litlum fyrirvara. Að sögn Almannavarna hefur dregið verulega úr afli og framleiðni gossins. Þó er meiri kraftur í því en gosum síðustu tveggja ára. Ekki er útilokað að ný gosop myndist, en mestar líkur eru á að þau opnist við Litla-Hrút. Lögregla varar því fólk við að dvelja nærri gosstöðvunum. Um 3.000 manns hafa engu að síður gengið að gosinu síðan það hófst. Gangan er um níu kílómetrar hvora leið og hefst við Suðurstrandarveg.