
Hítardalur. Ljósm. úr safni Mats Wibe Lund
Enn er óviðunandi símasamband í Hítardal
Ekki er enn komið ásættanlegt símasamband við Hítardal á Mýrum þrátt fyrir að komin séu mörg ár frá því að Finnbogi Leifsson bóndi þar vakti skýrt athygli á vandamálinu, ekki síst af öryggisástæðum. Rifja má upp að í frétt í Skessuhorni árið 2014 kemur fram að Finnbogi fari yfirleitt nokkrar ferðir á sumri inn að Hítarvatni til að finna fólk, sem ekki hafði náðst samband við og farið var að óttast um. Taldi Finnbogi að það væri árangursríkara að senda honum reykmerki en að reyna að ná í hann í farsíma. Þrátt fyrir öll árin hefur ekkert breyst í þessu sambandi.