
Samsett mynd úr upptöku sem Arna Sjöfn Ævarsdóttir tók þegar flutningabílnum er ekið framúr bílum og á móti umferð úr gagnstæðri átti. Litlu mátti muna að ekki varð stórslys.
Ökumaður flutningabíls rekinn eftir vítaverðan akstur
Á samfélagsmiðlum var í gær deilt myndbandi sem Arna Sjöfn Ævarsdóttir, vegfarandi á þjóðvegi 1 ofan við Borgarnes, tók. Sýnir það hvar ökumaður flutningabíls með aftanívagn tekur framúr fjölda bíla og ekur á móti bílum sem koma úr gagnstæðri átt. Stórhætta skapaðist og má þakka árvekni annarra ökumanna að ekki urðu slys á fólki.