
Fimmtíu ára afmæli Golfklúbbs Borgarness um næstu helgi
Félagar í Golfklúbbi Borgarness fagna 50 ára afmæli félagsins laugardaginn 16. júlí nk. Haldið verður upp á afmælið með afmælismóti og þá er búið að rita afmælisblað með 50 ára sögu klúbbsins, undir ritstjórn Heiðars Lind Hanssonar, sem gefið verður út á laugardaginn, bæði á prenti og á nýuppfærðri heimasíðu golfklúbbsins. Rétt tæplega 300 meðlimir eru í klúbbnum í dag.