
Félagsheimilið Þinghamar og sundlaugin. Ljósm. mm.
Umf. Stafholtstungna íhugar að stofna rafíþróttadeild
Ungmennafélag Stafholtstungna hyggst stofna rafíþróttadeild innan félagsins, en rafíþróttir hafa rutt sér til rúms undanfarin ár þar sem um er að ræða heilbrigða nálgun á tölvuleikjanotkun. Á vefsíðu Rafíþróttasambands Íslands kemur fram að á æfingum rafíþrótta sé stuðlað að andlegum styrk og félagsþroska ungmenna. Einnig er lögð áhersla á líkamlega hreyfingu og heilbrigði þar sem ofspilun getur leitt af sér ýmsa líkamlega kvilla.