
Arnar Már, Lilja Dögg og Bjarnheiður ýttu verkefninu úr vör á veitingastaðnum Önnu Jónu við Tryggvagötu í Reykjavík. Ljósm. saf.is
Ferðaþjónustan er að flytja út gestrisni þjóðarinnar
Verkefninu „Góðir gestgjafar“ var hleypt af stokkunum á veitingastaðnum Önnu Jónu í Tryggvagötu á föstudaginn. Þar opnuðu þau Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra, Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar og Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri vefsíðu verkefnisins og birtu sín póstkort á samfélagsmiðlum.