
Ástráður Haraldsson. Ljósm. Embætti ríkissáttasemjara.
Ástráður skipaður ríkissáttasemjari
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur skipað Ástráð Haraldsson í embætti ríkissáttasemjara til fimm ára frá og með 18. júlí. Embættið var auglýst laust til umsóknar 2. júní sl. Alls bárust sex umsóknir og voru umsækjendur metnir af ráðgefandi hæfnisnefnd sem félags- og vinnumarkaðsráðherra skipaði. Niðurstaða hennar var að tveir umsækjendur væru mjög vel hæfir til að gegna embætti ríkissáttasemjara. Ástráður Haraldsson uppfyllti best þær kröfur sem gerðar eru til þess sem gegnir embættinu.