Böðvar Ingason, Rögnvaldur Einarsson og Jóhannes Simonsen. Ljósmyndir: Skessuhorn/mm

Rögnvaldur gerður að heiðursfélaga í Sæljóni – myndir

Síðdegis í gær bauð Sæljón, félag smábátasjómanna á Akranesi, sjómönnum og öðrum gestum til veislu við fiskmarkaðinn á Akranesbryggju. Hér var um einskonar uppskeruhátíð að ræða hjá félaginu í kjölfar þess að strandveiðum sumarsins lauk fyrr í vikunni. Til máls tóku Böðvar Ingvason og Jóhannes Simonsen stjórnarmenn í félaginu. Jóhannes las upp yfirlýsingu frá Landssambandi smábátasjómanna þar sem fólk var hvatt til þátttöku í mótmælum gegn stöðvun strandveiða sem fram eiga að fara á Austurvelli í hádeginu á morgun, laugardag. Gestum var boðið upp á veglegar veitingar sem að þessu sinni var grillaður saltfiskur að frönskum, spænskum og íslenskum sið, grillað hnísukjöt og grjótkrabbi fyrir þá sem vildu smakka framandi rétti. Á grillinu báru þau sig fagmannlega að þau Sólveig Jóna Jóhannesdóttir og Guðmundur Páll Jónsson.

Rögnvaldur gerður að heiðursfélaga í Sæljóni - myndir - Skessuhorn