
Nú er unnið við að losa innréttingar og tæki úr húsinu. Ljósm. mm
Styttist í að KFUM húsið hverfi af sjónarsviðinu
Í þessari viku hafa starfsmenn byggingafyrirtækisins Bestla unnið við að tæma innréttingar og tæki úr KFUM og K húsinu við Garðabraut 1 á Akranesi. Húsið var byggt á árunum 1975-80 og þjónaði lengst af starfsemi KFUM. Undanfarin tvö ár hefur það þjónað sem mötuneytishús fyrir starfsmenn byggingafélagsins Bestla sem á húsið. Það verður fljótlega jafnað við jörðu til að rýmt fyrir nýju stórhýsi sem Bestla byggir á lóðinni. Bæjarstjórn samþykkti samhljóða á fundi sínum í marsmánuði nýtt skipulag fyrir lóðina þrátt fyrir athugasemdir sem bárust frá nágrönnum vegna hæðar væntanlegs fjölbýlishúss.