Meðfylgjandi ljósmyndir eru frá Hestamannafélaginu Glað.

Hestamannafélagið Glaður hélt reiðnámskeið

Dagana 27. – 30. júní sl. var haldið reiðnámskeið í Búðardal fyrir börn á aldrinum 8 – 16 ára. Kennari var Laufey Fríða Þórarinsdóttir, reiðkennari frá Hólum, og henni til aðstoðar var Kristín Þórarinsdóttir. Námskeiðið var vel sótt og stemningin góð þótt veðrið hefði vissulega mátt vera aðeins betra. Nemendur komu með sína hesta og lögð var áhersla á atriði sem nýtast við almennar útreiðar og til að auka sjálfsöruggi knapa. Nemendum var skipt upp í fjóra hópa eftir getu. Í lok síðasta dagsins var haldið lokahóf þar sem gestum og gangandi var boðið að stíga á bak og teymt var undir þeim á rólegum hestum. Einnig var boðið upp á grillaðar pylsur, safa og skemmtilega samveru í reiðhöllinni og var mæting góð.

Hestamannafélagið Glaður hélt reiðnámskeið - Skessuhorn