Fréttir

true

Útsaumur, þjóðdansar og þjóðbúningar á Skotthúfunni 2023

Þjóðbúningahátíðin Skotthúfan var haldin í Stykkishólmi laugardaginn 1. júlí. Þar gafst gestum til að mynda kostur á að sauma út litla lausavasa en slíka vasa báru konur innanklæða fyrr á öldum. Þá bauð Norska húsið þjóðbúningaklæddum gestum upp á kaffi og pönnukökur og Þjóðdansafélag Reykjavíkur tók sporið og dansaði íslenska þjóðdansa. Málstofa um þjóðbúninga var…Lesa meira

true

Sjö skjálftar yfir fjórir að stærð hafa verið staðfestir

Á jarðskjálftavef Veðurstofunnar segir að í gær, 4. júlí, hafi jarðskjálftahrina hafist í Fagradalsfjalli á Reykjanesi. Alls hafa um 2.200 skjálftar mælst og finnast stærstu skjálftarnir á Suðvesturhorni landsins, á Akranesi, Borgarnesi og upp í Borgarfjörð, samkvæmt heimildum Skessuhorns. Um 130 jarðskjálftar hafa verið yfirfarnir. Sérfræðingar búast við áframhaldandi skjálftavirkni í dag. Sjö skjálftar yfir…Lesa meira

true

Séra Aðalsteinn kveður brátt Grundarfjörð – Þakkar fyrir yndislegan tíma

Séra Aðalsteinn Þorvaldsson hefur sinnt starfi prests frá árinu 2008 í Setbergsprestakalli í Grundarfirði en hefur nú verið ráðinn prestur í Akureyrar- og Laugalandsprestakalli í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi. Skessuhorn sló á þráðinn til Aðalsteins sem segist hafa átt yndisleg ár í Grundarfirði og nágrenni, en um tíma leysti hann einnig af í Ingjaldshólsprestakalli. ,,Ég er…Lesa meira

true

Fagnar 25 árum í starfi – Hefur setið lengur samfellt en nokkur núverandi bæjarstjóra

Kristinn Jónasson átti í gær, þriðjudaginn 4. júlí, 25 ára starfsafmæli sem bæjarstjóri Snæfellsbæjar. Hann tók við starfinu einungis 32 ára gamall árið 1998 og er í dag sá bæjarstjóri sem setið hefur lengst samfellt í starfi framkvæmdastjóra sveitarfélaga hér á landi. Blaðamaður Skessuhorns sló á þráðinn til Kristins af þessu tilefni. Hann rifjar það…Lesa meira

true

Efla samstarf RML og LbhÍ um fræðslu og nýsköpun

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) og Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) hafa lengi átt farsælt samstarf á sviði fræðslu, rannsókna og nýsköpunar. Í gær var undirritað samkomulag um að efla samstarfið enn frekar með formlegri stofnun faghópa til að vinna að málefnum búgreina og faglegra þátta sem snerta landbúnað, landnýtingu, umhverfis- og loftslagsmál. „Faghóparnir munu greina tækifæri til aukins…Lesa meira

true

Keypti rekstur Hopp á Akranesi og Borgarnesi

Ragnar Heiðar Sigtryggsson er Akureyringur en býr á Ísafirði þar sem hann á og rekur tvö fyrirtæki. Hann rekur Viðburðastofu Vestfjarða, þar sem hann býður upp á almenna viðburðaþjónustu, streymi á viðburðum og útleigu á ýmsum búnaði. Einnig rekur hann Hopp á Ísafirði. Nýlega bætti hann við reksturinn og keypti Hopp á Akranesi og í…Lesa meira

true

Árangur Vestlendinga í ringó og boccia á Landsmóti

Landsmót UMFÍ 50+ var haldið í Stykkishólmi um Jónsmessu. Þar var að venju keppt í mörgum íþróttagreinum og aðrar kynntar. Um 300 keppendur víðs vegar að af landinu mættu og reyndu með sér í afli og hugsun. Vestlendingar sóttu mótið sæmilega og náðu allgóðum árangri. Í boccia voru skráðar 24 sveitir; ellefu af Vesturlandi, þar…Lesa meira

true

Skjálftavirkni mjög að aukast á Reykjanesi

Jarðaskjálftahrina er nú hafin á Reykjanesi og hafa á 17. hundrað skjálftar mælst frá því í gær. Sá stærsti var um klukkan 7:46 í morgun, um 4,6 stig, og fannst hann vel á Akranesi og í Borgarnesi. Fólk heyrði hvin á undan skjálftanum og glös glömruðu í skápum. Nú stendur yfir fundur vísindamanna Veðurstofunnar og…Lesa meira

true

Vinnu við deiliskipulag í Skipavík er lokið

Deiliskipulagstillaga fyrir hafnarsvæðið í Skipavík í Stykkishólmi var samþykkt í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms 29. júní sl. Skipulagið var samþykkt samhljóða á 12. fundi skipulagsnefndar og 4. fundi í hafnarstjórn en óeining var um málið í bæjarstjórn þar sem fjórir bæjarfulltrúar H-listans samþykktu tillöguna en þrír bæjarfulltrúar Í-listans greiddu atkvæði á móti. Skipulagsfulltrúa er nú falið…Lesa meira

true

Opnunarhátíð á Adventure Hotel Hellissandur á laugardaginn

Heimamenn á Hellissandi hafa beðið í þó nokkurn tíma eftir að Hótel Hellissandur verði endurvakið en ekki hefur verið mikil starfsemi á hótelinu síðustu ár. Nýir eigendur hafa fest kaup á hótelinu og mun það koma til með að heita Adventure Hotel Hellissandur og er í eigu Arctic Adventures. Fyrirtækið skipuleggur, selur og sér um…Lesa meira