Þessi fallega, prúðbúna stúlka, Salka Emilsdóttir, skartaði þjóðbúningi í tilefni dagsins. Ljósm. sá.

Útsaumur, þjóðdansar og þjóðbúningar á Skotthúfunni 2023

Þjóðbúningahátíðin Skotthúfan var haldin í Stykkishólmi laugardaginn 1. júlí. Þar gafst gestum til að mynda kostur á að sauma út litla lausavasa en slíka vasa báru konur innanklæða fyrr á öldum. Þá bauð Norska húsið þjóðbúningaklæddum gestum upp á kaffi og pönnukökur og Þjóðdansafélag Reykjavíkur tók sporið og dansaði íslenska þjóðdansa.

Útsaumur, þjóðdansar og þjóðbúningar á Skotthúfunni 2023 - Skessuhorn