
Síðast gaus á Reykjanesi í ágúst fyrir tæpu ári síðan. Ljósm. úr safni.
Skjálftavirkni mjög að aukast á Reykjanesi
Jarðaskjálftahrina er nú hafin á Reykjanesi og hafa á 17. hundrað skjálftar mælst frá því í gær. Sá stærsti var um klukkan 7:46 í morgun, um 4,6 stig, og fannst hann vel á Akranesi og í Borgarnesi. Fólk heyrði hvin á undan skjálftanum og glös glömruðu í skápum.
Nú stendur yfir fundur vísindamanna Veðurstofunnar og Háskóla Íslands með almannavörnum og má fastlega búast við að óvissustigi Almannavarna verði lýst yfir í ljósi þess að eldsumbrot eru ekki útilokuð á næstu dögum.
Rætur virkninnar eru á kunnugum slóðum við Fagradalsfjall á Reykjanesi. Virkninni nú svipar til aðdraganda síðustu eldgosa í Meradölum, en síðast gaus þar í ágúst 2022.