
Sjö skjálftar yfir fjórir að stærð hafa verið staðfestir
Á jarðskjálftavef Veðurstofunnar segir að í gær, 4. júlí, hafi jarðskjálftahrina hafist í Fagradalsfjalli á Reykjanesi. Alls hafa um 2.200 skjálftar mælst og finnast stærstu skjálftarnir á Suðvesturhorni landsins, á Akranesi, Borgarnesi og upp í Borgarfjörð, samkvæmt heimildum Skessuhorns. Um 130 jarðskjálftar hafa verið yfirfarnir. Sérfræðingar búast við áframhaldandi skjálftavirkni í dag. Sjö skjálftar yfir fjórum að stærð hafa mælst, sá stærsti 4,8 að stærð kl. 08:21 í morgun. Skjálftarnir raðast milli Fagradalsfjall og Keilis. Sérfræðingar útiloka ekki að skjálftarnir séu undanfari eldgott sem gæti orðið á svipuðum slóðum og síðustu tvö gos, eða norðan við það.
Þá segir í aðvörun Veðurstofunnar: „Aðgát skal höfð við brattar hlíðar þar sem grjóthrun getur orðið í kjölfar öflugra skjálfta. Íbúar í grennd við svæðið eru hvattir til að huga að lausa- og innanstokksmunum.“