Séra Aðalsteinn Þorvaldsson.

Séra Aðalsteinn kveður brátt Grundarfjörð – Þakkar fyrir yndislegan tíma

Séra Aðalsteinn Þorvaldsson hefur sinnt starfi prests frá árinu 2008 í Setbergsprestakalli í Grundarfirði en hefur nú verið ráðinn prestur í Akureyrar- og Laugalandsprestakalli í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi. Skessuhorn sló á þráðinn til Aðalsteins sem segist hafa átt yndisleg ár í Grundarfirði og nágrenni, en um tíma leysti hann einnig af í Ingjaldshólsprestakalli.