Adventure Hotel Hellissandur. Ljósm. vaks

Opnunarhátíð á Adventure Hotel Hellissandur á laugardaginn

Heimamenn á Hellissandi hafa beðið í þó nokkurn tíma eftir að Hótel Hellissandur verði endurvakið en ekki hefur verið mikil starfsemi á hótelinu síðustu ár. Nýir eigendur hafa fest kaup á hótelinu og mun það koma til með að heita Adventure Hotel Hellissandur og er í eigu Arctic Adventures. Fyrirtækið skipuleggur, selur og sér um framkvæmd ferða og afþreyingar og er eitt rótgrónasta ferðaþjónustufyrirtæki landsins sem teygir sögu sína til ársins 1983. Fyrirtækið er öflugt á sínu sviði og er með starfsemi um allt land. Þá á fyrirtækið tvö hótel á Suðurlandi undir merkjum Adventure Hotels auk þess að vera hluthafi í Óbyggðasetrinu á Fljótsdalshéraði.

Opnunarhátíð á Adventure Hotel Hellissandur á laugardaginn - Skessuhorn