Kristinn Jónasson hefur nú gegnt starfi bæjarstjóra í Snæfellsbæ í kvartöld.

Fagnar 25 árum í starfi – Hefur setið lengur samfellt en nokkur núverandi bæjarstjóra

Kristinn Jónasson átti í gær, þriðjudaginn 4. júlí, 25 ára starfsafmæli sem bæjarstjóri Snæfellsbæjar. Hann tók við starfinu einungis 32 ára gamall árið 1998 og er í dag sá bæjarstjóri sem setið hefur lengst samfellt í starfi framkvæmdastjóra sveitarfélaga hér á landi.