
Árangur Vestlendinga í ringó og boccia á Landsmóti
Landsmót UMFÍ 50+ var haldið í Stykkishólmi um Jónsmessu. Þar var að venju keppt í mörgum íþróttagreinum og aðrar kynntar. Um 300 keppendur víðs vegar að af landinu mættu og reyndu með sér í afli og hugsun. Vestlendingar sóttu mótið sæmilega og náðu allgóðum árangri.
Í boccia voru skráðar 24 sveitir; ellefu af Vesturlandi, þar sem Grundfirðingar mættu með fimm sveitir og geri aðrir betur. Alls voru leiknir 42 leikir og þar stóð sveit FEBAN frá Akranesi á toppnum. Vel gert Skagamenn!
Ringó er afbrigði af blaki þar sem leikið er með tvo gúmmíhringi. Þar mættu sjö lið til leiks og kepptu allir við alla, alls 21 leikur. UMSB átti hér eitt lið og landaði öðru sæti.
Sem sagt góður árangur og nú er bara að vona að 50 ára og eldri verði duglegri að hreyfa sig og æfa hinar ýmsu íþróttagreinar sem í boði eru. Landsmót er á hverju ári, þar sem konur og menn koma saman og reyna með sér. Hreyfing og hreysti – maður er manns gaman.
Flemming Jessen skráði