Deiliskipulagsuppdráttur á hafnarsvæðinu við Skipavík. Skjáskot úr deiliskipulagi.

Vinnu við deiliskipulag í Skipavík er lokið

Deiliskipulagstillaga fyrir hafnarsvæðið í Skipavík í Stykkishólmi var samþykkt í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms 29. júní sl. Skipulagið var samþykkt samhljóða á 12. fundi skipulagsnefndar og 4. fundi í hafnarstjórn en óeining var um málið í bæjarstjórn þar sem fjórir bæjarfulltrúar H-listans samþykktu tillöguna en þrír bæjarfulltrúar Í-listans greiddu atkvæði á móti. Skipulagsfulltrúa er nú falið að senda viðeigandi gögn til yfirferðar Skipulagsstofnunar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í framhaldinu skal birt auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda, segir í fundargerð bæjarstjórnarfundar 29. júní sl.

Vinnu við deiliskipulag í Skipavík er lokið - Skessuhorn