Fréttir

true

Ljósmyndasamkeppni Snæfellsbæjar 2023

Snæfellsbær efnir til ljósmyndasamkeppni í annað skipti. Menningarnefnd Snæfellsbæjar heldur utan um verkefnið ásamt markaðs- og upplýsingafulltrúa og hefur verið ákveðið að þemað í samkeppninni í ár verði menning og mannlíf í Snæfellsbæ. Mögulegt er að senda inn myndir frá 15. júní til og með 31. ágúst 2023 og segir á vef Snæfellsbæjar að vegleg verðlaun verði…Lesa meira

true

Skundað um Stykkishólm – MYNDASYRPA

Það var sannkölluð bongóblíða í Stykkishólmi í gær þegar blaðamaður Skessuhorns gerði sér ferð vestur til að afla frétta úr Hólminum. Á ferð sinni um bæinn kom hann við á sumarnámskeiði, kíkti á lífið við höfnina, fór út í Súgandisey, leit inn á Æðarsetur Íslands við Frúarstíg og á kaffihúsið Sjávarborg á Hafnargötu ásamt ýmsu…Lesa meira

true

Vinnuskólinn kominn á fulla ferð

Vinnuskóli Akraness hófst í byrjun júní og er samkvæmt handbók Vinnuskólans bæði vinna og skóli. Hann er félagslega skapandi vinnustaður, með kennslu í almennri vinnuskólavinnu og skýrar reglur varðandi vinnuumhverfi. Auk þess leggur Vinnuskólinn áherslu á eftirfarandi þætti í starfsemi sinni: Að gefa ungmennum á Akranesi tækifæri til að sinna og kynnast fjölbreyttum og skemmtilegum störfum þar…Lesa meira

true

Kristín og Alexander keppa á Heimsmeistaramótinu í klassískum lyftingum um helgina

Heimsmeistaramótið í klassískum kraftlyftingum fer fram þessa dagana í St. Julians á Möltu. Borgfirðingurinn Kristín Þórhallsdóttir og Skagamaðurinn Alexander Örn Kárason eru þangað mætt til að etja kappi en 400 keppendur eru skráðir til leiks frá 60 löndum. Ásamt Kristínu og Alexander mun Akureyringurinn Viktor Samúelsson einnig keppa á mótinu fyrir Íslands hönd. Alexander Örn…Lesa meira

true

Greining á þjónustumiðstöðvum fyrir þolendur ofbeldis lögð fram

Unnin hefur verið greining á þjónustumiðstöðvum fyrir þolendur ofbeldis í samræmi við ákvörðun dómsmálaráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra í samvinnu við heilbrigðisráðherra. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Markmið verkefnisins var að greina hentugustu leiðir til að tryggja starfsemi miðstöðva fyrir þolendur ofbeldis til framtíðar á Íslandi og hver aðkoma lögreglunnar ætti að vera að…Lesa meira

true

Framlengja starfsleyfi Hvals hf. til 12. júlí

Heilbrigðisnefnd Vesturlands hefur fallist á að framlengja gildandi starfsleyfi Hvals hf. til 12. júlí nk. en Hvalur hf. hefur verið án starfsleyfis frá 1. maí 2023 þegar fyrri framlenging leyfisins féll úr gildi. Til að Hvalur hf. haldi áfram starfsemi eftir 12. júlí þarf Heilbrigðiseftirlit Vesturlands að gefa út nýtt starfsleyfi og hefur vinna við…Lesa meira

true

Stuð á Sumargleði í Garðaseli

Það var mikið fjör á leikskólanum Garðaseli á Akranesi í morgun þegar blaðamaður Skessuhorns átti þar leið fram hjá. Þar var í gangi sumargleði leikskólans á þessum fallega degi. Hoppukastalar voru í boði foreldrafélagsins og í hádeginu verða grillaðar pylsur fyrir börnin og starfsfólkið. Ekki var annað að sjá en að allir væru að njóta…Lesa meira

true

Langar að byggja upp mikið og öflugt tónlistarstarf

Á síðasta ári var staða organista og kórstjóra við Akraneskirkju auglýst en veturinn á undan hafði hinn frækni Hilmar Örn Agnarsson sinnt starfinu í afleysingum. Honum leist mikið vel á kórinn og bæjarfélagið og sótti þess vegna um starfið. Hilmar var ráðinn og tók formlega við í september 2022. Hilmar er alinn upp í Reykjavík…Lesa meira

true

Drengur týndist í Vatnaskógi

Klukkan 2:30 í nótt voru björgunarsveitir kallaðar út til leitar að 9 ára gömlum dreng í Vatnaskógi í Hvalfjarðarsveit. Útkallið var nokkru síðar ítrekað og aukið í F2 en drengurinn fannst svo heill á húfi um klukkan 6:30 í morgun.Lesa meira

true

Gaf upp rangt nafn

Í vikunni hitti lögregla mann á sautjánda ári sem var að aka á torfæruhjóli við hesthúsahverfið á Æðarodda í Hvalfjarðarsveit. Reyndist hjólið óskráð og hann án réttinda, hann vildi ekki framvísa skilríkjum og gaf upp rangt nafn. Hann á von á sekt fyrir að ljúga til nafns, að aka án réttinda og vera á óskráðu…Lesa meira