Gaf upp rangt nafn

Í vikunni hitti lögregla mann á sautjánda ári sem var að aka á torfæruhjóli við hesthúsahverfið á Æðarodda í Hvalfjarðarsveit. Reyndist hjólið óskráð og hann án réttinda, hann vildi ekki framvísa skilríkjum og gaf upp rangt nafn. Hann á von á sekt fyrir að ljúga til nafns, að aka án réttinda og vera á óskráðu hjóli

Gaf upp rangt nafn - Skessuhorn