Sumarhátíð Garðasels er í dag. Ljósm. vaks.

Stuð á Sumargleði í Garðaseli

Það var mikið fjör á leikskólanum Garðaseli á Akranesi í morgun þegar blaðamaður Skessuhorns átti þar leið fram hjá. Þar var í gangi sumargleði leikskólans á þessum fallega degi. Hoppukastalar voru í boði foreldrafélagsins og í hádeginu verða grillaðar pylsur fyrir börnin og starfsfólkið. Ekki var annað að sjá en að allir væru að njóta saman, leika sér og hafa gaman. Hinum megin á leikskólalóðinni voru iðnaðarmenn á fullu við frágang á útisvæði skólans og stefnt er að ljúka þeim framkvæmdum á næstu vikum.

Stuð á Sumargleði í Garðaseli - Skessuhorn