
Skundað um Stykkishólm – MYNDASYRPA
Það var sannkölluð bongóblíða í Stykkishólmi í gær þegar blaðamaður Skessuhorns gerði sér ferð vestur til að afla frétta úr Hólminum. Á ferð sinni um bæinn kom hann við á sumarnámskeiði, kíkti á lífið við höfnina, fór út í Súgandisey, leit inn á Æðarsetur Íslands við Frúarstíg og á kaffihúsið Sjávarborg á Hafnargötu ásamt ýmsu öðru. Á leið sinni út úr bænum síðdegis stoppaði hann í smástund í hesthúsahverfinu rétt fyrir utan bæinn. Myndavélin var að sjálfsögðu með í för og fangaði einhver augnablik dagsins á þessum fallega sumardegi í þessum fallega bæ.