Fréttir

true

Endurvinnsluhlutfall Norðuráls eykst með nýjum samningi við Al Álvinnslu

Norðurál hefur gert samning við íslenska álendurvinnslufyrirtækið Al um vinnslu á gjallsandi sem fellur til við framleiðslu álversins á Grundartanga. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Norðurál. Ný verksmiðja sem Alur hefur fest kaup á mun vinna sandinn svo mögulegt sé að endurnýta hann í ýmsa framleiðslu, t.a.m. sementsframleiðslu. Norðurál hefur um árabil unnið að…Lesa meira

true

Sumarfögnuður í Hólmgarði

Kjalarfólk í leikskólanum í Stykkishólmi bauð til sumarfagnaðar í Hólmgarði síðastliðinn mánudag. Þar var einkum verið að fagna nýjum kjarasamningi aðildarfélaga BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem undirritaður var að morgni laugardagsins 10. júní. Uppleggið var tónlist, sápukúlur og krítar og mætti fjöldi bæjarbúa til að fagna með kjalarfólki. Sólin lét ekki sjá sig en…Lesa meira

true

Ný sýning opnar í Bókasafni Akraness á föstudag

Sumarsýning Lisfélags Akraness verður opnuð í Bókasafni Akraness næstkomandi föstudag kl. 16. Sýningin sem ber heitið Gengið að göflunum verður uppi fram til 31. ágúst. „Tilurð sýningarinnar er vegna þess að Ingibjörg á Bókasafninu hafði samband við okkur í Listfélaginu í vor og bauð okkur að nýta áður lítið nýtta aðstöðu bókasafnsins sem eru gaflar…Lesa meira

true

Ungur athafnamaður í Ólafsvík

Þótt Kristian Sævarsson sé aðeins 14 ára gamall Ólsari, og er nýbúinn að ljúka 9. bekk grunnskóla, lætur hann ekki nægja að læra heima þegar skóladeginum lýkur. Þá fer hann að búa til handfæraslóða í frítímanum með föður sínum sem er trillukarl á strandveiðum. Fréttaritari Skessuhorns hitti Kristian að máli. Hann segist hafa byrjað á…Lesa meira

true

Skoða íbúðabyggð á Jaðarsbakkasvæðinu

Í skipulagslýsingu fyrir Jaðarsbakkasvæðið sem bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti í gær, kemur m.a. fram að hugmyndir um svæðið innihaldi ekki einungis hugmyndir um hótel, baðlón, heilsurækt og ferðatengda starfsemi, heldur einnig þéttingu íbúðabyggðar. Með tillögunum er nú opnað fyrir þann möguleika að byggja íbúðarhúsnæði á svæðinu. Ekki er tilgreint hvar sú íbúðabyggð gæti risið, t.d. hvort…Lesa meira

true

Bæjarstjórn samþykkti að hefja endurskoðun skipulags Jaðarsbakka

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum í gær að hefja formlega endurskoðun á aðal- og deiliskipulagi Jaðarsbakka sem nær yfir 17,5 hektara svæði; „með það að markmiði að byggja upp miðstöð lýðheilsu, en þar er m.a. átt við byggingu hótels, baðlóns og íþróttaaðstöðu, auk skoðunar á möguleikum þess að þétta byggð. Lögð verður áhersla á…Lesa meira

true

Hafnaði á hvolfi úti í á

Um hádegisbilið á þriðjudag í liðinni viku var erlendur ferðamaður að aka yfir brú á Skógarstrandarvegi í austurátt yfir Laxá við Emmuberg. Að sögn lögreglu sagðist hann hafa verið í símanum sínum þegar hann missti stjórn á bifreiðinni og hafnaði á hvolfi út í Laxá. Þegar lögreglan kom á staðinn var héraðslæknir kominn og var…Lesa meira

true

Gilitrutt fer um landið

Leikhópurinn Lotta sótti Snæfellsnesið heim í síðustu viku og sýndi þar leikritið Gilitrutt. Lotta er á sýningarferð um landið í sumar og hefur skipulagt alls 57 sýningar á verkinu á um 40 mismunandi stöðum. Sunnudaginn 4. júní voru sýningar í Grundarfirði og Snæfellsbæ og mánudaginn 5. júní var sýning í Stykkishólmi, hvar fréttaritari Skessuhorns smellti…Lesa meira

true

 „Til þess gert að auðga mannlífið og hafa gaman“

Fyrir fjórum árum keypti fyrirtækið D9 ehf. bankahúsið í Búðardal sem stendur við Miðbraut 15. D9 er að stærstum hluta í eigu hjónanna Leifs Steins Elíssonar og Sveinbjargar Júlíu Svavarsdóttur og hafa þau síðan 2019 staðið fyrir framkvæmdum í húsinu sem var byggt árið 1970 og hýsti Búnaðarbankann, KB banka og síðast Arionbanka. Húsið hafði…Lesa meira

true

Saman í sturtu

Síðasta mánudag kom ferðamaður á lögreglustöðina á Akranesi og sagði að úti á tjaldsvæði hefði karlmaður verið að kíkja á sig í sturtunni. Lögregla fór og ræddi við aðilann sem sagðist hafa verið í sturtu á sama tíma en ekki verið að kíkja á milli sturtuklefa. Hann væri hávaxinn og erfitt fyrir hann að passa…Lesa meira