
Hjónin Sveinbjörg Júlía Svavarsdóttir og Leifur Steinn Elísson. Saabinn góði með einkanúmerið D9 er í bakgrunni. Ljósm. Úr einkasafni.
„Til þess gert að auðga mannlífið og hafa gaman“
Fyrir fjórum árum keypti fyrirtækið D9 ehf. bankahúsið í Búðardal sem stendur við Miðbraut 15. D9 er að stærstum hluta í eigu hjónanna Leifs Steins Elíssonar og Sveinbjargar Júlíu Svavarsdóttur og hafa þau síðan 2019 staðið fyrir framkvæmdum í húsinu sem var byggt árið 1970 og hýsti Búnaðarbankann, KB banka og síðast Arionbanka. Húsið hafði verið til sölu og staðið autt í um þrjú ár áður en Leifur Steinn og Sveinbjörg Júlía keyptu það.