Kristian að hnýta slóða. Ljósm. af.

Ungur athafnamaður í Ólafsvík

Þótt Kristian Sævarsson sé aðeins 14 ára gamall Ólsari, og er nýbúinn að ljúka 9. bekk grunnskóla, lætur hann ekki nægja að læra heima þegar skóladeginum lýkur. Þá fer hann að búa til handfæraslóða í frítímanum með föður sínum sem er trillukarl á strandveiðum. Fréttaritari Skessuhorns hitti Kristian að máli. Hann segist hafa byrjað á slóðagerðinni á síðasta ári eftir að faðir hans hafði keypti handfærabátinn Hrefnu SH. Kristian segist hafa verið að horfa á pabba sinn hnýta slóða í bílskúrnum og langað til að hjálpa honum. Ekki var annað að sjá að drengurinn hafi náð góðum tökum á að hnýta slóðana og ruku þeir eins og laufblöð úr höndunum á honum. „Já, ég er búinn að gera mér góða aðstöðu,“ segir Kristian og brosir. „Þú mátt alveg skrifa það,“ segir Kristian; „að ef trillukörlum vantar slóða mega þeir hafa samband við mig.“

Ungur athafnamaður í Ólafsvík - Skessuhorn