
Svæðið sem um ræðir í skipulagslýsingu nær frá Faxabraut, meðfram strandlengjunni og út að Höfða, alls 17,5 hektarar. Ljósm. mm
Bæjarstjórn samþykkti að hefja endurskoðun skipulags Jaðarsbakka
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum í gær að hefja formlega endurskoðun á aðal- og deiliskipulagi Jaðarsbakka sem nær yfir 17,5 hektara svæði; „með það að markmiði að byggja upp miðstöð lýðheilsu, en þar er m.a. átt við byggingu hótels, baðlóns og íþróttaaðstöðu, auk skoðunar á möguleikum þess að þétta byggð. Lögð verður áhersla á íþróttir og náttúru á svæðinu með skýrri tenginu við sjóinn og Langasand.“