
Gilitrutt fer um landið
Leikhópurinn Lotta sótti Snæfellsnesið heim í síðustu viku og sýndi þar leikritið Gilitrutt. Lotta er á sýningarferð um landið í sumar og hefur skipulagt alls 57 sýningar á verkinu á um 40 mismunandi stöðum. Sunnudaginn 4. júní voru sýningar í Grundarfirði og Snæfellsbæ og mánudaginn 5. júní var sýning í Stykkishólmi, hvar fréttaritari Skessuhorns smellti af þessum myndum. Ekki var annað að sjá en að börn og fullorðnir væru ánægð með leikverkið sem er eitt vinsælasta verk leikhópsins frá upphafi og var frumsýnt fyrir tíu árum. Nú var handritið dregið aftur upp úr skúffunni og Gilitrutt arkar um landið í sumar sem aldrei fyrr. Aðrar fyrirhugaðar sýningar hópsins á Vesturlandi í sumar eru á Akranesi sunnudaginn 2. júlí og í Borgarnesi fimmtudaginn 17. ágúst.
