
Endurvinnsluhlutfall Norðuráls eykst með nýjum samningi við Al Álvinnslu
Norðurál hefur gert samning við íslenska álendurvinnslufyrirtækið Al um vinnslu á gjallsandi sem fellur til við framleiðslu álversins á Grundartanga. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Norðurál. Ný verksmiðja sem Alur hefur fest kaup á mun vinna sandinn svo mögulegt sé að endurnýta hann í ýmsa framleiðslu, t.a.m. sementsframleiðslu.
Norðurál hefur um árabil unnið að því að auka verulega endurvinnsluhlutfall þess efnis sem fellur til við álframleiðsluna en á síðasta ári voru um 80% alls úrgangs sem til varð í verksmiðjunni endurunnin.
„Samningurinn við Al er mikilvægt skref í að standa við metnaðarfulla aðgerðaráætlun okkar í loftslags- og umhverfismálum. Við erum vel á veg komin að uppfylla markmið okkar um að draga úr kolefnislosun fyrir árið 2030. Samtímis höfum við einsett okkur að minnka urðun á blönduðum úrgangi og gera okkar ítrasta til að stuðla að því að sem allra mest af því sem til fellur við framleiðsluna skili sér áfram til endurvinnslu. Samningurinn við Al skiptir því miklu máli," segir Sigrún Helgadóttir, framkvæmastjóri Norðuráls Grundartanga.
Alur Álvinnsla hefur verið starfrækt frá árinu 1998 og stefnir að því að hámarka nýtingu áls sem framleitt er á Íslandi. Fyrirtækið vinnur ál úr álgjalli sem fellur til við álframleiðslu á Íslandi og framleiddi á síðasta ári um 4.000 tonn af áli með endurvinnslu álgjalls.
„Endurvinnsla álgjalls er umhverfislega mikilvæg. Hjá Al er notast við bestu tækni fáanlega (BAT) en jafnframt er Alur eina verksmiðjan á Íslandi sem endurvinnur álgjall. Það er mikið fagnaðarefni að loka hringnum í verksmiðju Als á Grundartanga. Öll efni sem koma til endurvinnslu hjá okkur eru áframnýtanleg eftir meðhöndlun,“ segir Brynja Silness, framkvæmdastjóri Als Álvinnslu.