Ljósm. Getty images.

Saman í sturtu

Síðasta mánudag kom ferðamaður á lögreglustöðina á Akranesi og sagði að úti á tjaldsvæði hefði karlmaður verið að kíkja á sig í sturtunni. Lögregla fór og ræddi við aðilann sem sagðist hafa verið í sturtu á sama tíma en ekki verið að kíkja á milli sturtuklefa. Hann væri hávaxinn og erfitt fyrir hann að passa sig í sturtuklefa og þyrfti alltaf að lyfta sturtuhausnum upp til að þrífa á sér höfuðið. Lögregla sættist á skýringar mannsins og ekki urðu frekari eftirmálar af þessu atviki.

Saman í sturtu - Skessuhorn