Sápukúlur, grænn gróður og grillaðar pulsur. Ljósm. sá.

Sumarfögnuður í Hólmgarði

Kjalarfólk í leikskólanum í Stykkishólmi bauð til sumarfagnaðar í Hólmgarði síðastliðinn mánudag. Þar var einkum verið að fagna nýjum kjarasamningi aðildarfélaga BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem undirritaður var að morgni laugardagsins 10. júní. Uppleggið var tónlist, sápukúlur og krítar og mætti fjöldi bæjarbúa til að fagna með kjalarfólki. Sólin lét ekki sjá sig en það kom ekki að sök því Stykkishólmsbúar eins og aðrir Vestlendingar eru orðnir ansi lagnir við að klæða sig eftir veðri.

Sumarfögnuður í Hólmgarði - Skessuhorn