
Björgunarsveitarmenn að störfum. Ljósm. úr safni Landsbjargar.
Drengur týndist í Vatnaskógi
Klukkan 2:30 í nótt voru björgunarsveitir kallaðar út til leitar að 9 ára gömlum dreng í Vatnaskógi í Hvalfjarðarsveit. Útkallið var nokkru síðar ítrekað og aukið í F2 en drengurinn fannst svo heill á húfi um klukkan 6:30 í morgun.