Vinnuflokkur að raka gras á Garðabraut. Ljósm. vaks

Vinnuskólinn kominn á fulla ferð

Vinnuskóli Akraness hófst í byrjun júní og er samkvæmt handbók Vinnuskólans bæði vinna og skóli. Hann er félagslega skapandi vinnustaður, með kennslu í almennri vinnuskólavinnu og skýrar reglur varðandi vinnuumhverfi. Auk þess leggur Vinnuskólinn áherslu á eftirfarandi þætti í starfsemi sinni: Að gefa ungmennum á Akranesi tækifæri til að sinna og kynnast fjölbreyttum og skemmtilegum störfum þar sem lögð er áhersla á  gleði, vinnu og lærdóm, að gefa nemendum tækifæri til að þroska vinnuvitund sína, að undirbúa nemendur fyrir almennan vinnumarkað, að námsefni og verkefni vinnuskólans samanstandi af  þremur þáttum sem eru fræðsla, tómstundir og vinna og að samsetning og hlutfall þessara þátta fari eftir aldri, getu og áhuga nemendanna. 

Vinnuskólinn kominn á fulla ferð - Skessuhorn