Hilmar Örn Agnarsson. Ljósm. sþ.

Langar að byggja upp mikið og öflugt tónlistarstarf

Á síðasta ári var staða organista og kórstjóra við Akraneskirkju auglýst en veturinn á undan hafði hinn frækni Hilmar Örn Agnarsson sinnt starfinu í afleysingum. Honum leist mikið vel á kórinn og bæjarfélagið og sótti þess vegna um starfið. Hilmar var ráðinn og tók formlega við í september 2022. Hilmar er alinn upp í Reykjavík og býr í dag við Hafravatn ásamt eiginkonu sinni, söngkonunni Björgu Þórhallsdóttur, þar sem þau stunda garðrækt og njóta náttúrunnar. Hilmar er að eigin sögn mikill já-maður og hefur notið þess að tengjast tónlistarlífinu á Akranesi undanfarin tvö ár. Hann segist alltaf hafa átt mikla tengingu við Akranes en afi hans og amma bjuggu á Skaganum þegar hann var yngri og því margar bernskuminningar tengdar staðnum. Blaðamaður settist niður með Hilmari á Kaffi Kaju í síðustu viku og ræddi um tónlistina og kórastarfið á Akranesi. Hilmar tekur það sérstaklega fram að blaðamaður verði að hafa það með í skrifunum hve organistinn dásamar kaffihúsið hennar Kaju.

Langar að byggja upp mikið og öflugt tónlistarstarf - Skessuhorn