Fréttir

true

Ætlaði að verða bóndi en stýrir nú einu glæsilegasta línuskipi landsins

Viðtal frá árinu 2014 við Bjarna Gunnarsson skipstjóra á Rifsnesi SH Línuveiðiskipið Rifsnes SH 44 er eitt það stærsta og best búna sinnar tegundar í íslenska flotanum. Bjarni Gunnarsson er skipstjóri á Rifsnesinu. Við hittum hann um borð í skipinu þegar það var nýkomið úr veiðiferð nú í maí. Það er ekki óeðlilegt að hefja…Lesa meira

true

Steinbítur á diskinn – uppskrift

Í blaði sem helgað er sjómennsku er ekki úr vegi að birta uppskrift að girnilegum fiskrétti. Skessuhorn leitaði til Óskars Þórs Þórðarsonar fagurkera og meistarakokks á Lava Resort á Miðhrauni II á Snæfellsnesi sem sendi okkur eftirfarandi uppskrift að fiskrétti, í tilefni sjómannadagsins. Verði ykkur að góðu. Smjörsteiktur Steinbítur með beikon tómatsósu Hráefni fyrir Steinbítinn…Lesa meira

true

Fasteignamat íbúða hækkar alls staðar nema í Grundarfirði

Nýtt fasteignamat fyrir árið 2024 er komið út. Heildarmat fasteigna á landinu öllu hækkar um 11,7% á milli ára en hækkunin er mismikil milli sveitarfélaga og eftir tegundum húsnæðis. Á Vesturlandi er heildarhækkun fasteignamats 13,3% en á höfuðborgarsvæðinu 11,1%. Íbúðareignir á Vesturlandi hækka að meðaltali um 12,2%, sumarhús um 14% og jarðir um 19,2%. Heildarmat…Lesa meira

true

Valdi útgerðina sem betur fer

Fyrir nokkrum árum stóð Akurnesingurinn Böðvar Ingvason á krossgötum í lífinu eftir að hafa tekist á við alvarleg veikindi. Þá komu félagar hans í smábátaútgerð að máli við hann og spurðu hvort hann væri til í að taka að sér rekstur fiskmóttökunnar í bænum. Böðvar ákvað að slá til og hefur rekið starfsemina síðan ásamt…Lesa meira

true

Ærin 6673 á Steinum II með þeim frjósamari

Í gærmorgun bar ærin 6673 á Steinum II í Stafholtstungum fimm stórum og frískum lömbum; þremur hrútlömbum og tveimur gimbrum. Að sögn Jóhanns Oddssonar bónda er þetta í annað árið í röð sem hún ber fimm lömbum. Kind þessi hefur verið einkar frjósöm í gegnum tíðina. Sem gemlingur bar hún tveimur lömbum, árin eftir þremur…Lesa meira

true

Með salt í blóðinu

Það ríkti ekta íslenskt vorveður þegar blaðamaður Skessuhorns lagði leið sína út á Breiðina á Akranesi til að eiga nokkur orð við Eymar Einarsson sjómann. Að koma í gættina á beitningarskúrnum hans er eins og að koma í annan heim. Það er kaffi á könnunni og hún er stór. Enda á eftir að koma í…Lesa meira

true

Önnur úthlutun úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs

Í gær var úthlutað úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs í annað sinn og var úthlutunarhátíðin haldin í Nýsköpunarsetri Dalabyggðar sem staðsett er í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal. DalaAuður er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Dalabyggðar og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og er undir hatti brothættra byggða. Verkefnið hófst í mars á síðasta ári. Frumkvæðissjóður DalaAuðs styrkir bæði samfélagseflandi verkefni og nýsköpun…Lesa meira

true

Snæfell fer upp í Subway deildina

Kvennalið Snæfells úr Stykkishólmi, sem lék í 1. deildinni á síðasta tímabili, mun fylgja Stjörnunni og Þór Akureyri upp í Subway deildina fyrir komandi tímabil. Vegna fjölgunar í Subway deildinni var vitað að Þór og Stjarnan færu upp um deild þar sem þau léku til úrslita í fyrstu deildinni á nýliðnu tímabili. Nú hefur Snæfelli…Lesa meira

true

Fundi samstarfsráðherra Norðurlandanna lauk í dag í Reykholti

Sumarfundur samstarfsráðherra Norðurlandanna fór fram í Reykholti í gær og lauk á hádegi í dag. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, er samstarfsráðherra Norðurlanda og stýrði hann fundinum, enda er Ísland með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni þetta árið. Um er að ræða opinberan samstarfsvettvangur norrænu ríkisstjórnanna. Á þeim vettvangi er unnið að sameiginlegum lausnum á…Lesa meira

true

Skallagrímur náði í sín fyrstu þrjú stig

Skallagrímur tók á móti liði Uppsveita í 4. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn á Skallagrímsvelli í Borgarnesi. Fyrir leik voru heimamenn með eitt stig eftir þrjá leiki en gestirnir frá Flúðum án stiga í neðsta sætinu. Mikill vindur var í Nesinu á meðan á leiknum stóð og spiluðu heimamenn með vindi…Lesa meira