Böðvar ásamt Jóni Mýrdal syni sínum.

Valdi útgerðina sem betur fer

Fyrir nokkrum árum stóð Akurnesingurinn Böðvar Ingvason á krossgötum í lífinu eftir að hafa tekist á við alvarleg veikindi. Þá komu félagar hans í smábátaútgerð að máli við hann og spurðu hvort hann væri til í að taka að sér rekstur fiskmóttökunnar í bænum. Böðvar ákvað að slá til og hefur rekið starfsemina síðan ásamt eigin útgerð. Blaðamaður Skessuhorns rölti við í fiskmóttökunni til að ná af honum tali í smástund. Það var auðvelt að sjá hvar hann væri að finna, hann var maðurinn á lyftaranum, íklæddur lopapeysu og í stígvélum í vorhraglandanum.