
Kvennalið Snæfells tekur þátt í efstu deild, Subway deildinni á næsta tímabili. Ljósm. sá
Snæfell fer upp í Subway deildina
Kvennalið Snæfells úr Stykkishólmi, sem lék í 1. deildinni á síðasta tímabili, mun fylgja Stjörnunni og Þór Akureyri upp í Subway deildina fyrir komandi tímabil. Vegna fjölgunar í Subway deildinni var vitað að Þór og Stjarnan færu upp um deild þar sem þau léku til úrslita í fyrstu deildinni á nýliðnu tímabili. Nú hefur Snæfelli einnig verið boðið að fara upp í Subway deildina þar sem ÍR gaf frá sér sitt sæti í deildinni á dögunum en Snæfell endaði í þriðja sæti á síðasta tímabili.