
Eymar Einarsson, þreyttur en brosleitur að lokinni síðari vitjun um netin sama dag í mars fyrir tveimur árum.
Með salt í blóðinu
Það ríkti ekta íslenskt vorveður þegar blaðamaður Skessuhorns lagði leið sína út á Breiðina á Akranesi til að eiga nokkur orð við Eymar Einarsson sjómann. Að koma í gættina á beitningarskúrnum hans er eins og að koma í annan heim. Það er kaffi á könnunni og hún er stór. Enda á eftir að koma í ljós að það er eitthvað um heimsóknir í skúrinn.