
Styrkþegar stóðu fyrir á mynd að lokinni afhendingu. Lengst til hægri er Linda Guðmundsdóttir verkefnastjóri DalaAuðs.
Önnur úthlutun úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs
Í gær var úthlutað úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs í annað sinn og var úthlutunarhátíðin haldin í Nýsköpunarsetri Dalabyggðar sem staðsett er í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal. DalaAuður er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Dalabyggðar og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og er undir hatti brothættra byggða. Verkefnið hófst í mars á síðasta ári.