
Fasteignamat íbúða hækkar alls staðar nema í Grundarfirði
Nýtt fasteignamat fyrir árið 2024 er komið út. Heildarmat fasteigna á landinu öllu hækkar um 11,7% á milli ára en hækkunin er mismikil milli sveitarfélaga og eftir tegundum húsnæðis. Á Vesturlandi er heildarhækkun fasteignamats 13,3% en á höfuðborgarsvæðinu 11,1%. Íbúðareignir á Vesturlandi hækka að meðaltali um 12,2%, sumarhús um 14% og jarðir um 19,2%. Heildarmat fasteigna á landinu öllu hækkar mest í Reykhólahreppi, um 26,9%. Þar hækkar mat íbúðaeigna um 43,5%, jarða um 28,7% og sumarhúsa um 18,2%. Heildarmat fasteigna á landinu öllu hækkar minnst í Grundarfjarðarbæ, um 1,8%. Er það jafnframt eina sveitarfélagið þar sem fasteignamat íbúða lækkar milli ára en breyting á íbúðamatinu þar er neikvæð um 0,9%. Nýtt fasteignamat má finna á vefnum www.fasteignaskra.is.