
Guðmundur Ingi Guðbrandsson ásamt öðrum samstarfsráðherrum Norðurlanda og fundargestum. Myndatakan var í þokumuggu á svölunum á Hótel Varmalandi. Ljósm. Stjórnarráðið.
Fundi samstarfsráðherra Norðurlandanna lauk í dag í Reykholti
Sumarfundur samstarfsráðherra Norðurlandanna fór fram í Reykholti í gær og lauk á hádegi í dag. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, er samstarfsráðherra Norðurlanda og stýrði hann fundinum, enda er Ísland með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni þetta árið. Um er að ræða opinberan samstarfsvettvangur norrænu ríkisstjórnanna. Á þeim vettvangi er unnið að sameiginlegum lausnum á þeim viðfangsefnum þar sem Norðurlöndin eru talin geta náð mestum árangri með samvinnu. Samstarfið á þessu ári ber yfirskriftinni „Norðurlönd – afl til friðar.“ Starf ráðherranefndarinnar fer fram í 12 nefndum þar sem ráðherrar fagráðuneyta eiga með sér samstarf eftir málefnasviðum. Vinnan á sér einnig stað í nefndum embættismanna.