Fréttir

true

Ekki á neinni ákveðinni hillu

Markús Ingi Karlsson er sjómaður með mörg áhugamál og með skapandi hugsun. Hann settist niður í spjall með blaðamanni Skessuhorns í Borgarnesi fyrir stuttu þar sem farið var yfir málin. Markús býr í grennd við Grundarfjörð, en starfar sem vélstjóri á línubátnum Tryggva Eðvarðs SH-2 sem rær frá Ólafsvík. Þar er fjögurra manna áhöfn; skipstjóri,…Lesa meira

true

Þegar Haförninn fórst

Fjörutíu ár eru liðin frá því þegar Haförninn SH-122 sökk við Bjarneyjar. Ekki þarf að tíunda mikilvægi sjómennsku fyrir þjóðina gegnum aldirnar, enda er starf sjómannsins að sækja björg í bú úr þeirri matarkistu sem sjórinn er. En starfinu fylgir áhætta og oft hafa Íslendingar þurft að greiða þungan toll mannslífa í sjóslysum. Skessuhorn lítur…Lesa meira

true

Matvælaráðherra úthlutar 577 milljónum úr Matvælasjóði

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra úthlutaði í gær um 577 milljónum króna úr Matvælasjóði. Alls hljóta 53 verkefni styrk en 177 umsóknir bárust til sjóðsins. Matvælasjóður veitir styrki í fjórum styrkjaflokkum: Báru, Keldu, Afurð og Fjársjóði. Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi. Styrkþegar geta verið fyrirtæki sem stofnuð eru á síðustu fimm árum. Einnig frumkvöðlar sem vilja þróa…Lesa meira

true

Mikið fjör í skólahlaupi Grunnskóla Grundarfjarðar – Myndasyrpa

Árlegt skólahlaup Grunnskóla Grundarfjarðar fór fram í morgun. Frábært veður var og gríðarlega mikið fjör. Sú nýbreytni var þetta árið að hlaupinu var breytt í hálfgert litahlaup. Krakkarnir fengu öll boli og voru hvattir til að mæta í fötum sem mættu fá lit á sig. Svo var hlaupinn hringur í bænum þar sem fara þurfti…Lesa meira

true

Frelsið á sjó

Rakel Jóhannsdóttir er ættuð af Ströndum og býr í Borgarnesi. Hún er með eigin útgerð og hefur prufað ýmsar gerðir sjómennsku, enda komin af sjómönnum í nokkra ættliði. Hún segir mikið frelsi felast í að stunda strandveiðar. Blaðamaður Skessuhorns náði tali af henni í byrjun veiðitímabilsins og innti hana eftir ástæðum þess að hún fór…Lesa meira

true

Fjögurra hæða fjölbýlishús rís á Breið

Bæjarstjórn Akraness auglýsir nú breytingu á deiliskipulagi Breiðarsvæðis, en breytingin afmarkast af lóðinni Bárugötu 15 þar sem áður var t.a.m. til húsa skemmtistaðurinn Breiðin. Felst breyting deiliskipulagsins í því að íbúðauppbygging verði heimiluð á lóðinni ásamt núverandi atvinnuhúsnæði. Með samþykktu deiliskipulagi verður þar reist fjölbýlishús á norðanverðri lóðinni, raunar ofan á nyrðri hluta hússins sem…Lesa meira

true

Framleiðslustjóri í næstum 20 ár

Hraðfrystihús Hellissands var stofnað árið 1942 og var starfrækt þar í meira en 40 ár. Árið 1983 varð eldsvoði í frystihúsinu á Hellissandi og var þá byggt nýtt við hafnargarðinn í Rifi sem tók til starfa árið eftir. Blaðamaður Skessuhorns fékk að kíkja í heimsókn í Hraðfrystihús Hellissands í Rifi á dögunum og þar tók…Lesa meira

true

Fjallabræður í óvissuferð komu við á Höfða

Það var óvænt og óundirbúin heimsókn sem íbúar á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða á Akranesi fengu í gærkvöldi. Karlakórinn Fjallabræður var þá í óvissuferð á svæðinu og ákváðu kórfélagar að koma við á Höfða og bjóða upp á tónleika eftir kvöldmat á heimilinu. Meðan beðið var komu kórsins tóku þær Ásta Marý og Berglind starfskonur…Lesa meira

true

„Hér eru miklir möguleikar“

Bæst hefur í veitingastaðaflóruna á Akranesi eftir að Lighthouse Restaurant var opnað fyrir veitingasölu á Kirkjubraut 8-10 um miðjan maímánuð. Staðurinn er opinn sunnudaga til fimmtudaga frá klukkan 11-23, en föstudaga og laugardaga er opnunartíminn frá kl. 12-01. Leggur staðurinn áherslu á hamborgara, pizzur og pítur auk þess sem þar verður boðið upp á rétt…Lesa meira

true

Allt dýrahald bannað á bæ á Vesturlandi

Matvælastofnun hefur farið fram á það við lögreglu að ábúendur á bæ á Vesturlandi verði með dómi sviptir heimild til að hafa dýr í sinni umsjá. Ekki er tilgreint hvaða bær á í hlut. Beiðnin byggist á 44.gr. laga nr. 55/2013 um velferð dýra en þar segir að svipta megi umráðamenn dýra með dómi heimild…Lesa meira