Oddur og Hulda eru eigendur Lighthouse Restaurant. Sonur þeirra Guðbjörn Jón fer á leikskóla í haust.

„Hér eru miklir möguleikar“

Bæst hefur í veitingastaðaflóruna á Akranesi eftir að Lighthouse Restaurant var opnað fyrir veitingasölu á Kirkjubraut 8-10 um miðjan maímánuð. Staðurinn er opinn sunnudaga til fimmtudaga frá klukkan 11-23, en föstudaga og laugardaga er opnunartíminn frá kl. 12-01. Leggur staðurinn áherslu á hamborgara, pizzur og pítur auk þess sem þar verður boðið upp á rétt dagsins, smárétti, kaffi og kökur. Oddur Tryggvi Elvarsson og Hulda Guðbjörnsdóttir eru eigendur staðarins.

„Hér eru miklir möguleikar“ - Skessuhorn