
Eldri borgarar mönnuðu litahliðin í þríhyrningnum og var erfitt að sjá hvor skemmtu sér betur, þeir eða börnin. Ljósmyndir; tfk
Mikið fjör í skólahlaupi Grunnskóla Grundarfjarðar – Myndasyrpa
Árlegt skólahlaup Grunnskóla Grundarfjarðar fór fram í morgun. Frábært veður var og gríðarlega mikið fjör. Sú nýbreytni var þetta árið að hlaupinu var breytt í hálfgert litahlaup. Krakkarnir fengu öll boli og voru hvattir til að mæta í fötum sem mættu fá lit á sig. Svo var hlaupinn hringur í bænum þar sem fara þurfti í gegnum nokkrar litastöðvar. Stöðvarnar voru mannaðar af sjálfboðaliðum sem voru ósparir á að hella mismunandi litadufti yfir hlauparana. Svo var boðið upp á grillaðar pylsur í lok hlaups og ekki var annað að sjá en að allir hafi skemmt sér konunglega. Bæði hlauparar, litadreifarar og aðrir sem stóðu að þessu. Frábært framtak sem verður vonandi endurtekið að ári.