Óli á skrifstofunni sinni. Ljósm. vaks

Framleiðslustjóri í næstum 20 ár

Hraðfrystihús Hellissands var stofnað árið 1942 og var starfrækt þar í meira en 40 ár. Árið 1983 varð eldsvoði í frystihúsinu á Hellissandi og var þá byggt nýtt við hafnargarðinn í Rifi sem tók til starfa árið eftir. Blaðamaður Skessuhorns fékk að kíkja í heimsókn í Hraðfrystihús Hellissands í Rifi á dögunum og þar tók á móti honum með brosi á vör framleiðslustjórinn Gunnar Ólafur Sigmarsson, yfirleitt kallaður Óli. Óli man eftir því þegar hann var að vinna í sumarvinnu í frystihúsinu árið sem það brann. Hann er fæddur árið 1971 og um sumarið 1983 fékk hann að rífa upp úr stæðum í nokkrar vikur eins og margir pollar fengu á þeim tíma. Óli var á sjó í um 14 ár en ákvað árið 2004 að fara að vinna í landi og var kominn með vinnu. „Þá hringdu þeir í mig frá HH og báðu mig að koma og spjalla við sig. Þeir báðu mig að taka við sem framleiðslustjóri sem ég hef starfað við síðan þá og það verða því komin 20 ár í janúar á næsta ári sem ég hef starfað hér.“

Framleiðslustjóri í næstum 20 ár - Skessuhorn