
Fjallabræður í óvissuferð komu við á Höfða
Það var óvænt og óundirbúin heimsókn sem íbúar á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða á Akranesi fengu í gærkvöldi. Karlakórinn Fjallabræður var þá í óvissuferð á svæðinu og ákváðu kórfélagar að koma við á Höfða og bjóða upp á tónleika eftir kvöldmat á heimilinu. Meðan beðið var komu kórsins tóku þær Ásta Marý og Berglind starfskonur á Höfða sig til og sungu fyrir viðstadda við undirleik Sigurðar Guðmundssonar. Kórinn tók svo lagið fyrir íbúa og starfsfólk og söng í um klukkutíma undir stjórn Halldórs Gunnars Pálssonar. Eins og kunnugt er er Halldór Gunnar frá Flateyri. Hann sagði við þetta tilefni að þetta væri hans leið til að færa Skagamönnum þakkir fyrir að hafa í kjölfar snjóflóðanna á Flateyri 1995, tekið á móti hópi barna frá Flateyri, og þar á meðal honum sjálfum, og leyft þeim að dvelja á Akranesi í tvær vikur sumarið eftir flóðin.