
Rakel býr í Borgarnesi og líkar þar vel.
Frelsið á sjó
Rakel Jóhannsdóttir er ættuð af Ströndum og býr í Borgarnesi. Hún er með eigin útgerð og hefur prufað ýmsar gerðir sjómennsku, enda komin af sjómönnum í nokkra ættliði. Hún segir mikið frelsi felast í að stunda strandveiðar. Blaðamaður Skessuhorns náði tali af henni í byrjun veiðitímabilsins og innti hana eftir ástæðum þess að hún fór að stunda sjóinn.