Fréttir

true

Hreppslaug verður opnuð í dag

Í dag hefst sumaropnun Hreppslaugar í Skorradal sem á síðasta ári var enduropnuð eftir gagngerar endurbætur með nýju laugarhúsi. Að sögn Kristjáns Guðmundssonar formanns Umf. Íslendings verður opnunartíminn í sumar frá klukkan 18 til 22 þriðjudaga til föstudaga, en klukkan 13 til 22 um helgar. Lokað verður á mánudögum. Í júlímánuði verður svo opnað klukkan…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu í þokunni á móti Fjölni

ÍA og Fjölnir mættust í 5. umferð Lengjudeildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn á Akranesvelli við frekar erfið skilyrði. Mikil þoka var í fyrri hálfleik og setti mark sitt á leikinn. Fjölnismenn fundu betur fjölina sína í fyrri hálfleik og komust yfir strax á 10. mínútu. Eftir hornspyrnu barst boltinn út hægra…Lesa meira

true

Fiskmarkaður Íslands færði sjómannagörðunum peningagjöf

Aðalfundur Fiskmarkaðs Íslands fór fram 30. maí síðastliðinn í Björgunarstöðinni Von í Rifi. Við það tækifæri afhenti Guðmundur Smári Guðmundsson, stjórnarformaður fyrir hönd FMÍS, sjómannagörðunum í Ólafsvík og Hellissandi gjöf að fjárhæð 250.000 kr. hvor. Er það þakklætisvottur fyrir það kraftmikla starf sem þar fer fram. Þóra Olsen og Illugi Jens Jónasson tóku við gjöfunum…Lesa meira

true

Tilraunareitur til að auka líffræðilegan fjölbreytileika

Á horni Bresaflatar og Ketilsflatar á Akranesi er búið að girða af smá grasblett sem ætlunin er að gera tilraun með í sumar. Bletturinn verður ekki sleginn, heldur grasið látið vaxa upp og einungis snyrt. Einnig verður villtum blómafræjum sáð í blettinn. Fram kemur á vef bæjarins að þetta sé liður í að auka líffræðilega…Lesa meira

true

Sjómannadagshelgin gengin í garð – myndir

Sjómannadagurinn er á sunnudaginn og er víða dagskrá um helgina af því tilefni. Grundarfjörður er engin undantekning og verður nóg um að vera um helgina. Meðal annars verður sundlaugarfjör fyrir krakkana, sjómannadagsgolfmót á Bárarvelli, Krakkasprell í Vélsmiðju Grundarfjarðar, hátíðarsigling og margt fleira. í morgun komu sjómenn við í Leikskólanum Sólvöllum í Grundarfirði með fiskasýningu þar…Lesa meira

true

Fuglaflensa er ekki að granda lundum við Faxaflóa

Eins og fram hefur komið í Skessuhorni og fleiri fjölmiðlum hefur töluvert fundist af dauðum ritum og lundum að undanförnu, einkum við Faxaflóa. „Öll sýni sem rannsökuð hafa verið á Tilraunastöð HÍ að Keldum hafa verið neikvæð m.t.t. fuglaflensu. Nú er talið ólíklegt að skæð fuglaflensa sé til staðar í villtum fuglum hér á landi,“…Lesa meira

true

Kraftmikið starf í Tónlistarskóla Akraness

Skólaslit Tónlistarskólans á Akranesi fóru fram við hátíðlega athöfn 23. maí síðstliðinn.  Þar tóku tólf nemendur við stigsprófsskírteinum og sextán nemendur við áfangaprófsskírteinum.  Auk þess fengu nemendur í einleiksflokki og trommusveit sem tóku þátt í Nótunni viðurkenningarskjal fyrir frábæra frammistöðu. „Skólastarfið í vetur hefur verið kraftmikið enda er úrvalslið kennara við skólann og nemendur okkar…Lesa meira

true

Matarbúr Kaju lokar brátt á Akranesi

Karen Emilía Jónsdóttir, Kaja, hefur ákveðið að loka versluninni Matarbúr Kaju, á Stillholti 23 á Akranesi, þann 1. september. Segir hún ákvörðunina ráðast af því að ekki sé nægileg eftirspurn eftir slíkri þjónustu á Akranesi en verslunin einblínir á sölu lífrænnar matvöru. Kaja sjálf ætlar að snúa sér meira að framleiðslunni sjálfri og heildsölunni en…Lesa meira

true

Þurfti að standa á bala til að ná upp á beitningarborðið

Alfons Finnsson kveðst vera færeysk ættaður Ólsari. Þar hefur hann búið alla tíð að undanskyldum fimm árum þegar hann bjó í Danmörku fyrir og um aldamótin. Alla tíð hefur hann verið viðloðandi sjó, byrjaði tíu ára að beita í landi en var fjórtán eða fimmtán ára þegar hann var fyrst munstraður um borð í bát.…Lesa meira