Sumir tóku á fiskunum á meðan aðrir létu sér nægja að horfa. Ljósmyndir: tfk.

Sjómannadagshelgin gengin í garð – myndir

Sjómannadagurinn er á sunnudaginn og er víða dagskrá um helgina af því tilefni. Grundarfjörður er engin undantekning og verður nóg um að vera um helgina. Meðal annars verður sundlaugarfjör fyrir krakkana, sjómannadagsgolfmót á Bárarvelli, Krakkasprell í Vélsmiðju Grundarfjarðar, hátíðarsigling og margt fleira. í morgun komu sjómenn við í Leikskólanum Sólvöllum í Grundarfirði með fiskasýningu þar sem yngstu íbúarnir fengu að skoða, snerta og handleika sjávarfang. Boðið var upp á harðfisk með smjöri á og svo var skorað á krakkana í reipitog.

Sjómannadagshelgin gengin í garð - myndir - Skessuhorn